83. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 8. júní 2021 kl. 10:35


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 10:35
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 10:35
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 14:04
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 10:35
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 10:35
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB) fyrir Ágúst Ólaf Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 10:35
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 10:35
Smári McCarthy (SMc), kl. 10:35
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 10:35

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:35
Dagskrárliðnum var frestað.

2) 537. mál - gjaldeyrismál Kl. 10:35
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til 2. umræðu með atkvæðum Óla Björns Kárasonar, Brynjars Níelssonar, Bryndísar Haraldsdóttur, Ólafs Þórs Gunnarssonar og Þórarins Inga Péturssonar.

Undir nefndarálit meiri hluta og breytingartillögur rituðu Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Þórarinn Ingi Pétursson.

3) 603. mál - félög til almannaheilla Kl. 10:40
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til 2. umræðu með atkvæðum allra nefndarmanna.

Undir nefndarálit rituðu allir nefndarmenn, þar af Smári McCarthy og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson með fyrirvara.

4) ReglugerðEvrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/852 um að koma á ramma til að greiða fyrir sjálfbærri fjárfestingu og um breytingu á reglugerð (ESB) 2019/2088. Kl. 10:40
Nefndin samþykkti að afgreiða álit um málið til utanríkismálanefndar.

Undir álitið rituðu allir nefndarmenn utan Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

5) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2088 um upplýsingar tengdar sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu Kl. 10:40
Nefndin samþykkti að afgreiða álit um málið til utanríkismálanefndar.

Undir álitið rituðu allir nefndarmenn utan Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

6) 360. mál - græn atvinnubylting Kl. 10:45
Nefndin fjallaði um málið.

7) Önnur mál Kl. 10:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00