9. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 152. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 21. desember 2021 kl. 13:20


Mætt:

Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 13:20
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 13:20
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 13:20
Daði Már Kristófersson (DMK), kl. 13:20
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 13:20
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 13:20
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 13:20
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 13:20
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 13:20

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir boðaði forföll.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:20
Dagskrárlið frestað.

2) 3. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022 Kl. 13:20
Nefndin samþykkti að flytja breytingartillögu þess efnis að við lög um almannatryggingar bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem kveður á um rétt þeirra sem áttu rétt til greiðslu örorkulífeyris, slysaörorkulífeyris eða endurhæfingarlífeyris árinu 2021 til eingreiðslu að fjárhæð 53.100 kr.

3) Önnur mál Kl. 13:25
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:25