19. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 152. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 1. febrúar 2022 kl. 09:10


Mætt:

Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 09:15
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:15
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 09:15
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:15
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:15
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:15
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 09:15
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 09:15
Orri Páll Jóhannsson (OPJ) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 09:40

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:15
Fundargerð 18. fundar var samþykkt.

2) 253. mál - fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðrúnu Þorleifsdóttur, Elísabetu Júlíusdóttur og Benedikt Hallgrímsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

3) 232. mál - styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma Kl. 09:45
Tillaga formanns um að málið yrði afgreitt frá nefndinni var samþykkt af öllum nefndarmönnum.
Að nefndaráliti meiri hluta standa allir nefndarmenn utan Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur.

4) Önnur mál Kl. 09:45
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:50