31. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 15. mars 2022 kl. 09:10


Mætt:

Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 09:10
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 09:10
Björn Leví Gunnarsson (BLG) fyrir (ESH), kl. 09:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:10
Eva Dögg Davíðsdóttir (EDD), kl. 09:10
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:10
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 09:10
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 09:10

Ágúst Bjarni Garðarsson og Ásthildur Lóa Þórsdóttir boðuðu forföll.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárliðnum var frestað.

2) Reynslan af störfum fastanefnda Seðlabankans Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Tryggva Pálsson, Þórhildi Hansdóttur Jetzek og Jóhannes Karl Sveinsson frá úttektarnefnd um reynsluna af starfi fastanefnda Seðlabanka Íslands.

3) Fyrirkomulag gjaldheimtu vegna umsókna um ríkisborgararétt Kl. 10:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Berglindi Báru Sigurjónsdóttur og Valgerði Maríu Sigurðardóttur frá dómsmálaráðuneyti.

4) Umsagnarbeiðnir Kl. 10:15
Nefndin samþykkti að veita formanni heimild til að óska eftir umsögnum um þingmál sem til hennar er vísað enda verði nefndarmönnum gefinn kostur á að koma að ábendingum um umsagnaraðila og umsagnarbeiðnin sett á dagskrá næsta fundar nefndarinnar þar á eftir til staðfestingar, sbr. 2. mgr. 23. gr. starfsreglna fastanefnda. Ákveðið var að heimildin tæki eingöngi til mála þar sem umsagnarfrestur væri hefðbundinn.

5) Önnur mál Kl. 10:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20