58. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 13. júní 2022 kl. 18:35


Mætt:

Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 18:35
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 18:35
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 18:35
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 18:35
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 19:10
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 18:35
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 18:35
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 18:35
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 18:35

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 18:35
Frestað.

2) 80. mál - vextir og verðtrygging og húsaleigulög Kl. 18:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Tómas Brynjólfsson og Guðmund Kára Kárason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta með frávísunartillögu standa Guðrún Hafsteinsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.

Að nefndaráliti minni hluta með breytingartillögu stendur Ásthildur Lóa Þórsdóttir.

3) 533. mál - fjármálafyrirtæki o.fl. Kl. 18:55
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Óttar Guðjónsson frá Lánasjóði sveitarfélaga.

4) 9. mál - tollalög Kl. 19:10
Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti standa allir nefndarmenn.

5) Önnur mál Kl. 19:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 19:30