14. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 8. nóvember 2022
kl. 09:15
Mætt:
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 09:15Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:15
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:15
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:15
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 09:15
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 09:15
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:15
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Ásthildur Lóa Þórsdóttir voru fjarverandi.
Guðbrandur Einarsson tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.
Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:15
Dagskrárliðnum var frestað.
2) 2. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023 Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þorbjörgu Þráinsdóttur og Sveinbjörn Indriðason frá Isavia, Heiði Margréti Björnsdóttur frá BSRB og Steindór Haraldsson, Óskar Magnússon og Drífu Hjartardóttur frá Sóknasambandi Íslands.
3) Önnur mál Kl. 10:10
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:10