29. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 9. desember 2013 kl. 10:52


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 10:48
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 10:48
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 10:59
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 10:51
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:48
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 10:57
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 10:49

WÞÞ var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.
RR var fjarverandi af persónulegum ástæðum.
JÞÓ var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Benedikt S. Benediktsson
Gautur Sturluson

Bókað:

1) Fundargerðir 27. og 28. fundar. Kl. 10:52
Fundargerðir 27. og 28. funda nefndarinnar voru samþykktar.

2) 156. mál - verslun með áfengi og tóbak Kl. 10:55
Á fund nefndarinnar komu Guðrún Þorleifsdóttir og Valdemar Ásbjörnsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 157. mál - aukatekjur ríkissjóðs Kl. 11:41
Drög að nefndaráliti um málið voru lögð fram. Þá var lögð fram tillaga um að málið yrði afgreitt á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt með atkvæðum VilB, LínS, SJS, ÁPÁ, FSigurj og PHB.

4) 177. mál - skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða Kl. 11:42
Drög að nefndaráliti um málið voru lögð fram. Þá var lögð fram tillaga um að málið yrði afgreitt á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt með atkvæðum VilB, LínS, SJS, ÁPÁ, FSigurj, PHB og GStein.

5) Önnur mál Kl. 11:43
Nefndin ræddi mögulega dagskrá næstu funda. Þá ræddi nefndin meðferð umsagnarbeiðnar um 59. mál, raforkustrengur til Evrópu.
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 11:48