34. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 16. desember 2013 kl. 08:35


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 08:35
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 08:35
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 08:35
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 08:35
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 08:44
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:09
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 08:39
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 08:40
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 08:35

VilB vék af fundi af persónulegum ástæðum kl. 09:26 en kom aftur kl. 10:20.
JÞÓ var fjarverandi.

Nefndarritari: Benedikt S. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 08:35
Fundargerðir 32. og 33. fundar nefndarinnar voru samþykktar.

2) 3. mál - ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014 Kl. 08:36
Á fund nefndarinnar komu Jón Vilberg Guðjónsson og Margrét Magnúsdóttir frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni hugmyndir um breytingar á frumvarpinu.
Nefndin ræddi málið.

3) 2. mál - tekjuaðgerðir fjárlagafrumvarps 2014 Kl. 09:59
Nefndin ræddi málið.
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um málið. Lögð var fram tillaga um að nefndin afgreiddi málið á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt með atkvæðum FSigurj, PHB, RR, VilB, LínS og WÞÞ.

4) 168. mál - vátryggingastarfsemi og miðlun vátrygginga Kl. 09:16
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um málið. Lagt var til að nefndin afgreiddi málið á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt samhljóða.

5) 205. mál - tollalög o.fl. Kl. 09:06
Nefndin ræddi málið.

6) 204. mál - tekjuskattur Kl. 09:43
Nefndin ræddi málið.

7) Önnur mál Kl. 10:46
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:46