49. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 12. febrúar 2014 kl. 10:33


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 10:33
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 10:33
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 10:33
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 10:56
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:33
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 10:33
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 10:33
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 10:33

Guðmundur Steingrímsson og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Benedikt S. Benediktsson
Gautur Sturluson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:33
Nefndin samþykkti fundargerðir 47. og 48. fundar.

2) 220. mál - opinber innkaup Kl. 10:37
Á fund nefndarinnar komu Hrafn Hlynsson og Guðrún Ögmundsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni þingmálið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir var valin framsögumaður málsins.

3) 238. mál - greiðslur yfir landamæri í evrum Kl. 11:08
Á fund nefndarinnar kom Guðmundur Kári Kárason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Guðmundur kynnti nefndinni málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
Frosti Sigurjónsson var valinn framsögumaður málsins.

4) 189. mál - verðbréfaviðskipti og kauphallir Kl. 11:02
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um málið. Lögð var fram tillaga um að nefndin afgreiddi málið á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt samhljóða.

5) 274. mál - fjármálafyrirtæki Kl. 11:07
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um málið. Lögð var fram tillaga um að nefndin afgreiddi málið á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt samhljóða.

6) Önnur mál Kl. 11:30
Nefndin ræddi hugmyndir að dagskrá næstu funda.
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 11:34