77. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 13. maí 2014 kl. 09:04


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:04
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 09:04
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:04
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 09:04
Brynjar Níelsson (BN) fyrir RR, kl. 09:52
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 09:15
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:04
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:04
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:04

Jón Þór Ólafsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Benedikt S. Benediktsson
Gautur Sturluson

Bókað:

1) 316. mál - fjárhagslegar tryggingarráðstafanir Kl. 09:08
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um frumvarpið.
Nefndin ræddi málið.

2) 524. mál - Seðlabanki Íslands Kl. 09:10
Nefndin ræddi málið.

3) 426. mál - fjármálastöðugleikaráð Kl. 09:12
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um málið ásamt tillögu um að málið yrði afgreitt á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt samhljóða.

4) Lög um gjaldeyrismál Kl. 09:52
Á fund nefndarinnar komu Tómas Brynjólfsson og Leifur Arnkell Skarphéðinsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Ingibjörg Guðbjartsdóttir, Rannveig Júníusdóttir og Freyja V. Þórarinsdóttir frá Seðlabanka Íslands. Gestir kynntu nefndinni hugmyndir um breytingu á lögum um gjaldeyrismál og svörðuðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 10:42
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:42