3. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 23. september 2014 kl. 12:04


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 12:04
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 12:04
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 12:06
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 12:06
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 12:04
Katrín Jakobsdóttir (KJak) fyrir Steingrím J. Sigfússon (SJS), kl. 12:04
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 12:04
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 12:04

Unnur Brá Konráðsdóttir og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Benedikt S. Benediktsson
Gautur Sturluson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 12:04
Umfjöllun um dagskrárliðinn var frestað til næsta fundar.

2) 75. mál - skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða Kl. 12:05
Á fund nefndarinnar komu Hafdís Ólafsdóttir og Sigurður H. Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Lögð var fram tillaga um að Vilhjálmur Bjarnason yrði framsögumaður málsins. Tillagan var samþykkt.
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um málið ásamt tillögu um að nefndin afgreiddi málið á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt samhljóða.

3) Önnur mál Kl. 12:50
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 12:50