52. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 4. maí 2015 kl. 09:30


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:30
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 09:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:17
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 09:30
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:30
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:30
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:30

Árni Páll Árnason og Jón Þór Óalfsson voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Gautur Sturluson
Þorbjörn Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerð 51. fundar var samþykkt.

2) 571. mál - fjármálafyrirtæki Kl. 09:35
Á fund nefndarinnar mættu þau Leifur Arnkell Skarphéðinsson, Tómas Brynjólfsson og Tinna Finnbogadóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og fóru yfir helstu athugasemdir og breytingartillögur sem fram hafa komið við vinnslu málsins.

Umræðunni verður fram haldið á næsta fundi nefndarinnar miðvikudaginn 6. maí nk.

3) Önnur mál Kl. 11:15
Ekki var fleira gert á fundinum.

Fundi slitið kl. 11:15