54. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 2. maí 2016 kl. 09:30


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:30
Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 09:30
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:40
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 09:30
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 09:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:25
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 09:45
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 10:20
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:30

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Frestað til næsta fundar.

2) 631. mál - skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða Kl. 09:35
Á fund nefndarinnar mættu Lilja Sturludóttir og Guðmundur Pálsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Gylfi Magnússon. Kynntu þau málið fyrir nefndinni og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 666. mál - Lífeyrissjóður bænda Kl. 10:15
Anna Valbjörg Ólafsdóttir og Lilja Sturludóttir mættu á fund nefndarinnar, kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 667. mál - skattar og gjöld Kl. 10:35
Ólafur Stephensen frá Félagi atvinnurekenda mætti á fund nefndarinnar, kynnti umsögn félagsins og svaraði spurningum nefndarmanna.

5) 668. mál - fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyrirtækja í vexti Kl. 11:50
Ólafur Stephensen frá Félagi atvinnurekenda mætti á fund nefndarinnar, kynnti umsögn félagsins og svaraði spurningum nefndarmanna.

6) Önnur mál Kl. 12:00
Nefndarmenn ákváðu að þiggja boð japanska sendiráðsins um hádegisverð.
Fleira var ekki gert á fundinum.

Fundi slitið kl. 11:00