57. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 11. maí 2016 kl. 09:00


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 09:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:00
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 09:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) fyrir Katrínu Jakobsdóttur (KJak), kl. 09:00
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 09:30
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:00

Sigríður Á. Andersen boðaði forföll. Katrín Jakobsdóttir mætti kl. 10:13 og vék Steinunn Þóra Árnadóttir þá af fundi.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 667. mál - skattar og gjöld Kl. 09:05
Á fundinn mætti Henný Hinz frá Alþýðusambandi Íslands. Kynnti hún umsögn sambandsins um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 668. mál - fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyrirtækja í vexti Kl. 09:25
Á fundinn mættu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins, Davíð Lúðvíksson og Elínrós Líndal frá Samtökum iðnaðarins og Magnús Harðarson og Magnús K. Ásgeirsson frá Kauphöll Íslands. Kynntu þau umsagnir sínar um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 384. mál - vextir og verðtrygging o.fl. Kl. 10:40
Dagskrárlið frestað.

5) Aðgerðir gegn skattaskjólum Kl. 10:40
Nefndarmenn ræddu skýrslu nefndarinnar um skattaskjól.

6) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert á fundinum.

Fundi slitið kl. 11:00