15. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 8. febrúar 2018
kl. 09:05
Mættir:
Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:05Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:24
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:05
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:22
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:05
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:05
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:13
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:27
Þorsteinn Víglundsson boðaði forföll. Silja Dögg Gunnarsdóttir var fjarverandi.
Nefndarritari: Gunnlaugur Helgason
Bókað:
1) 2. mál - fjármálastefna 2018--2022 Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar komu Axel Hall og Gunnar Haraldsson frá fjármálaráði. Gestirnir ræddu álitsgerð fjármálaráðs og svöruðu spurningum nefndarmanna.
2) Aðgangur að upplýsingum úr fyrirtækjaskrá Kl. 10:02
Liðnum var frestað.
3) Viðvera endurskoðenda á aðalfundum Kl. 10:03
Liðnum var frestað.
4) 93. mál - afleiðuviðskipti, miðlægir mótaðilar og afleiðuviðskiptaskrár Kl. 10:03
Ákveðið var að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður málsins.
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með umsagnarfresti til 22. febrúar 2018.
5) Fundargerð Kl. 10:04
Fundargerð 14. fundar var samþykkt með fyrirvara um að ekki yrðu gerðar athugasemdir fyrir lok dags.
6) Önnur mál Kl. 10:04
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:05