1. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 18. september 2018 kl. 09:00


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:00
Halldóra Mogensen (HallM) fyrir Smára McCarthy (SMc), kl. 09:00
Njörður Sigurðsson (NS), kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:00

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Þorsteinn Víglundsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Ákvörðun um opinn fund Kl. 09:00
Nefndin samþykkti, með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna, að halda opinn fund með fulltrúum peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um skýrslu peningastefnunefndar til Alþingis.

Fundi slitið kl. 09:05