14. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 2. nóvember 2018 kl. 13:00


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 13:00
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 13:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 13:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 13:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 13:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 13:00
Smári McCarthy (SMc), kl. 13:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE) fyrir Silju Dögg Gunnarsdóttur (SilG), kl. 13:00

Þorsteinn Víglundsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Fundargerð 13. fundar var samþykkt.

2) 139. mál - ársreikningar Kl. 13:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Gunnar Dofra Ólafsson, Árnínu Steinunni Kristjánsdóttur og Ástu S. Fjeldsted frá Viðskiptaráði Íslands.

Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu. Allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu.

3) 162. mál - vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Kl. 13:35
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu. Allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu, þar af Oddný G. Harðardóttir og Smári McCarthy með fyrirvara.

4) Önnur mál Kl. 13:48
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:48