16. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 8. nóvember 2018
kl. 09:10
Mættir:
Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Ásgerður K. Gylfadóttir (ÁsgG), kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Smári McCarthy voru fjarverandi.
Nefndarritari: Steindór Dan Jensen
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárlið frestað.
2) 312. mál - endurskoðendur og endurskoðun Kl. 09:10
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar og að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður.
3) 314. mál - aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka Kl. 09:10
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar og að Brynjar Níelsson yrði framsögumaður.
4) Þjóðhagsspá að vetri 2018 Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Marínó Melsteð, Björn Björnsson, Gunnar Guðmundsson og Brynjar Örn Ólafsson frá Hagstofu Íslands sem kynntu þjóðhagsspá að vetri 2018 og svöruðu spurningum nefndarmanna.
5) Önnur mál Kl. 10:05
Nefndin ræddi um starfið fram undan.
Fundi slitið kl. 10:10