43. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 28. febrúar 2019 kl. 09:10


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Ásgerður K. Gylfadóttir (ÁsgG), kl. 09:10
Einar Kárason (EinK), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10

Bryndís Haraldsdóttir og Þorsteinn Víglundsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerðir 38., 39. og 40. fundar voru samþykktar.

2) Beiðni um áheyrnaraðild Kl. 09:10
Nefndin samþykkti beiðni frá Flokki fólksins um að Inga Sæland hlyti fyrir hans hönd áheyrnaraðild að fundum nefndarinnar.

3) 84. mál - tekjuskattur Kl. 09:10
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti og að Brynjar Níelsson yrði framsögumaður málsins.

4) 434. mál - Þjóðarsjóður Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sturlu Pálsson og Guðrúnu Sóleyju Gunnarsdóttur frá Seðlabanka Íslands.

5) 436. mál - ökutækjatryggingar Kl. 09:40
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Vigdísi Halldórsdóttur og Gunnar Pálsson frá Samtökum fjármálafyrirtækja.

6) Önnur mál Kl. 09:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:55