61. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 7. maí 2019 kl. 09:30


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:30
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 09:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:30
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:30
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:55
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:30
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:30

Brynjar Níelsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerð 60. fundar var samþykkt.

2) 765. mál - sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Katrínu Júlíusdóttur og Yngva Örn Kristinsson frá Samtökum fjármálafyrirtækja og Pál Harðarson og Árnínu Steinunni Kristjánsdóttur frá Kauphöll Íslands. Samhliða var fjallað um 3. dagskrárlið.

3) 790. mál - Seðlabanki Íslands Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Katrínu Júlíusdóttur og Yngva Örn Kristinsson frá Samtökum fjármálafyrirtækja og Pál Harðarson og Árnínu Steinunni Kristjánsdóttur frá Kauphöll Íslands. Samhliða var fjallað um 2. dagskrárlið.

4) Breyting á lögum um verðbréfaviðskipti (Prospectus) Kl. 10:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðmund Kára Kárason og Mörtu Margréti Rúnarsdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

5) 637. mál - innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta Kl. 10:50
Dagskrárlið frestað.

6) Önnur mál Kl. 10:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:50