73. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 7. júní 2019
kl. 12:36
Mættir:
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 12:36Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 12:36
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 12:36
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 12:36
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 12:36
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 12:36
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 12:36
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 12:36
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 12:39
Páll Magnússon var fjarverandi.
Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) 953. mál - breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022 Kl. 12:36
Til fundarins komu Axel Hall, Ásgeir Brynjar Torfason, Gunnar Haraldsson og Þórhildur Hansdóttir Jetzek frá fjármálaráði. Þau fjölluðu um umsögn ráðsins um tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu fyrir árin 2018-2022 og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.
2) Önnur mál Kl. 14:19
Fleira var ekki gert.
3) Fundargerð Kl. 14:20
Fundi slitið kl. 14:21