73. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, miðvikudaginn 6. maí 2020 kl. 08:30


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 08:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 08:30
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 08:30
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 08:30
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 08:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 08:30
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 08:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 08:30
Páll Magnússon (PállM), kl. 08:30
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 08:30

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) 724. mál - fjáraukalög 2020 Kl. 08:30
Frumvarpið var afgreitt til 2. umræðu með atkvæðum allra nefndarmanna. Að nefndarálti stendur meiri hluti nefndarinnar en hann skipa Willum Þór Þórsson, Haraldur Benediktsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Páll Magnússon, Njáll Trausti Friðbertsson, Björn Leví Gunnarsson, Birgir Þórarinsson og Inga Sæland.
Birgir Þórarinsson og Inga Sæland skrifa undir nefndarálitið með fyrirvara sem fram kemur í álitinu. Björn Leví Gunnarsson ritar undir nefndarálitið með fyrirvara sem hann hyggst gera grein fyrir í ræðu.
Nefndarmenn í stjórnarandstöðu munu standa að sameiginlegum breytingatillögum, en einnig hver fyrir sig.
Ágúst Ólafur Ágústsson mun leggja fram nefndarálit minni hluta sem og breytingatillögu.
Jón Steindór Valdimarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, styður tillögur sem fram koma í álitinu en mun leggja fram breytingatillögur.

2) Sviðsmyndir í efnahagsmálum Kl. 09:46
Til fundarins komu Tómas Brynjólfsson og Sigurður Ólafsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þeir kynntu sviðsmyndir í efnahagsmálum sem ráðuneytið hefur útbúið og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra. Þau gögn sem afhent voru flokkast undir trúnaðarmál.

3) Önnur mál Kl. 10:35
Fleira var ekki gert.

4) Fundargerð Kl. 10:36
Fundargerð 72 fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:37