20. fundur
fjárlaganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 23. nóvember 2020 kl. 09:15


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:15
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:15
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:15
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:15
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:15
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 10:03
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:15
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:15
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:15
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:15

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 277. mál - staðfesting ríkisreiknings 2019 Kl. 09:15
Til fundarins komu Skúli Eggert Þórðarson, Guðrún Jenný Jónsdóttir, Ingi K. Magnússon, Birgir Finnbogason og Jón Loftur Björnsson frá Ríkisendurskoðun. Þau kynntu umsögn stofnunarinnar um frumvarpið og skýrslu hennar um endurskoðun ríkisreiknings fyrir árið 2019. Þá svöruðu þau spurningum nefndarmanna um það efni.

2) 1. mál - fjárlög 2021 Kl. 10:34
Nefndin ræddi um frumvarpið á fundinum.

3) Önnur mál Kl. 10:49
Rætt var um þá vinnu sem framundan er við vinnslu þeirra mála sem til afgreiðslu eru hjá nefndinni. Fleira var ekki gert.

4) Fundargerð Kl. 11:03
Fundargerð 18. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:04