43. fundur
fjárlaganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 23. febrúar 2021 kl. 09:03


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:03
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:03
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:03
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:03
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:21
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:03
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:03
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:03
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:03

Ágúst Ólafur Ágústsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Framleiðni í heilbrigðisþjónustu Kl. 09:03
Til fundarins komu Ásta Valdimarsdóttir, Runólfur Birgir Leifsson, Guðmann Ólafsson, Sigríður Jónsdóttir og Þorsteinn Hallgrímsson frá heilbrigðisráðuneytinu. Þau kynntu skýrslu ráðuneytisins um aukna framleiðni og gæði heilbrigðisþjónustu með nýju fjármögnunarkerfi og leiðbeinandi viðmiðum sem gefin var út í október 2020. Auk þess svöruðu gestirnir spurningum nefndarmanna um efni skýrslunnar.

2) Önnur mál Kl. 10:51
Rætt var um þá vinnu sem framundan er. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:59
Fundargerð 41. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:00