54. fundur
fjárlaganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 14. apríl 2021 kl. 08:34


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 08:34
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:12
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 08:34
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 08:34
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 08:34
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 08:34
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 08:34
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) fyrir Pál Magnússon (PállM), kl. 08:53
Oddný G. Harðardóttir (OH) fyrir Ágúst Ólaf Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 08:34
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 08:34

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 627. mál - fjármálaáætlun 2022--2026 Kl. 08:35
Til fundarins komu Gunnar Haraldsson, Axel Hall, Ásgeir Brynjar Torfason og Þórhildur Hansdóttir Jetzek. Þau kynntu 9. álitsgerð fjármálaráðs um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2022-2026 og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.

2) Önnur mál Kl. 10:44
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:45
Fundargerð 53. fundar var samþykkt

Fundi slitið kl. 10:46