56. fundur
fjárlaganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 27. apríl 2021 kl. 09:04


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:04
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:04
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:04
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:04
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:04
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:04
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:04
Oddný G. Harðardóttir (OH) fyrir Ágúst Ólaf Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:04
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:04
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:04

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 538. mál - nýting á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni Kl. 09:04
Til fundarins komu Magnús Guðmundsson og Ingibjörg Halldórsdóttir frá Vatnajökulsþjóðgarði.
Kl. 9:39. Einar Á. E. Sæmundsen frá Þjóðgarðinum Þingvöllum. Gestirnir kynntu umsagnir sínar og svöruðu spurningum frá nefndarmönnum um efni þeirra.

2) Önnur mál Kl. 10:06
Rætt var um efni minnisblaða sem ráðuneytin eru með í vinnslu fyrir nefndina. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:22
Fundargerð 55. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:23