24. fundur
fjárlaganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 25. nóvember 2022 kl. 13:04


Mætt:

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) formaður, kl. 13:04
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 13:04
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 2. varaformaður, kl. 13:04
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 13:04
Kristrún Frostadóttir (KFrost), kl. 13:04
Stefán Vagn Stefánsson (SVS), kl. 13:04
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:15
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 13:04
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 13:04

Bryndís Haraldsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 409. mál - fjáraukalög 2022 Kl. 13:04
Kl. 13:14. Til fundarins kom Sigurður Helgi Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Einnig komu Guðrún Ögmundsdóttir og Þorkell Sigurlaugsson frá LSR og Benedikt Jóhannesson frá Talnakönnun. Þau kynntu fjárhagsstöðu A-deildar LSR og þær breytingar sem gerðar voru á deildinni árið 2017. Auk þess var farið yfir lífeyrisaukasjóð og varasjóð. Síðan svöruðu gestirnir spurningum nefndarmanna.

2) 1. mál - fjárlög 2023 Kl. 14:27
Til fundarins kom Sigurður Helgi Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hann fór yfir svör við spurningum um málefni ÍL- sjóðs sem nefndin hafði sent ráðuneytinu.

3) Önnur mál Kl. 15:02
Fleira var ekki gert.

4) Fundargerð Kl. 15:03
Fundargerð 23. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 15:04