28. fundur
fjárlaganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 5. desember 2022 kl. 09:34


Mætt:

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) formaður, kl. 09:34
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:34
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 2. varaformaður, kl. 09:34
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:34
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:34
Kristrún Frostadóttir (KFrost), kl. 09:34
Stefán Vagn Stefánsson (SVS), kl. 09:34
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:53
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:34
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:34

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2023 Kl. 09:34
Til fundarins kom Ragna Árnadóttir frá Alþingi. Hún kynnti óskir forseta Alþingis um breytingar á fjárlagafrumvarpinu og svaraði spurningum nefndarmanna.
Lagt var fram nefndarálit meiri hluta nefndarinnar og breytingatillögur.
Frumvarpið var afgreitt til 2. umræðu með atkvæðum allra nefndarmanna nema BLG sem greiddi atkvæði gegn því.
Meiri hluti nefndarinnar stendur að nefndaráliti meiri hluta og breytingatillögum en hann skipa BjG, BHar, HarB, SVS, VilÁ og ÞórP. Minni hluti nefndarinnar en hann skipa BLG, EÁ og KFrost munu leggja fram sitt hvert nefndarálitið og breytingatillögur.

2) Önnur mál Kl. 11:19
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:20
Fundargerð 27. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:21