57. fundur
fjárlaganefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 14. júní 2017 kl. 09:30


Mættir:

Haraldur Benediktsson (HarB) formaður, kl. 09:30
Hanna Katrín Friðriksson (HKF) 1. varaformaður, kl. 09:30
Theodóra S. Þorsteinsdóttir (ThÞ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 09:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NF), kl. 09:30
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:30
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:30
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:36

Silja Dögg Gunnarsdóttir vék af fundi kl. 10:33.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Framkvæmd fjárlaga 2017 Kl. 09:30
Til fundarins komu Viðar Helgason, Elín Guðjónsdóttir, Kristinn Jónasson og Íris Hannah Atladóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir lögðu fram og kynntu afkomugreinargerð ríkissjóðs fyrir tímabilið janúar - mars 2017 og svöruðu spurningum nefndarmanna um hana.

2) Viljayfirlýsing ríkis og borgar um aukið framboð lóða. Kl. 10:54
Dagskrárliðnum var frestað.

3) Önnur mál Kl. 10:55
Fleira var ekki gert.

4) Fundargerð Kl. 10:57
Fundargerð 56. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:58