25. fundur
fjárlaganefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 12. mars 2018 kl. 09:31


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:31
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:31
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ) 2. varaformaður, kl. 09:34
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:31
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:31
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:31
Njáll Trausti Friðbertsson (NF), kl. 09:31
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:31
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:31
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 09:31

Þorsteinn Víglundsson vék af fundi kl. 11:14.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Framkvæmdasjóður aldraðra Kl. 09:31
Samþykkt af Willum Þór Þórssyni, Haraldi Benediktssyni, Birgi Þórarinssyni, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, Njáli Trausta Friðbertssyni og Páli Magnússyni að tilnefna Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur og Njál Trausta Friðbertsson í stjórn sjóðsins. Ólafur Ísleifsson og Ágúst Ólafur Ágústsson sátu hjá. Björn Leví Gunnarsson greiddi atkvæði gegn tilnefningunni og bókar eftirfarandi:
„Það samræmist ekki lögum og reglum að alþingismenn taki sæti í nefndum sem starfa undir starfsreglum ráðherra. Það stríðir gegn því eftirlitshlutverki sem þingmaður á að sinna. Ég vísa í starfreglur um opinberar framkvæmdir, lög um skipan opinberra framkvæmda, siðareglur þingmanna, siðareglur um innri endurskoðun, og laga um endurskoðendur. Athugasemdir og spurningar voru lagðar fram en ekki svarað nema með vísun í hefðir. Hvorki af meiri hluta né í lögfræðilegu áliti sem nefndin fékk.“

2) Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir Kl. 09:31
Samþykkt af Willum Þór Þórssyni, Haraldi Benediktssyni, Birgi Þórarinssyni, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, Njáli Trausta Friðbertssyni og Páli Magnússyni að tilnefna Harald Benediktsson til setu í nefndinni.
Ólafur Ísleifsson og Ágúst Ólafur Ágústsson sátu hjá við afgreiðslu málsins. Björn Leví Gunnarsson greiddi atkvæði gegn tilnefningunni og bókar eftirfarandi:
„Það samræmist ekki lögum og reglum að alþingismenn taki sæti í nefndum sem starfa undir starfsreglum ráðherra. Það stríðir gegn því eftirlitshlutverki sem þingmaður á að sinna. Ég vísa í starfreglur um opinberar framkvæmdir, lög um skipan opinberra framkvæmda, siðareglur þingmanna, siðareglur um innri endurskoðun, og laga um endurskoðendur. Athugasemdir og spurningar voru lagðar fram en ekki svarað nema með vísun í hefðir. Hvorki af meiri hluta né í lögfræðilegu áliti sem nefndin fékk.“

3) 167. mál - markaðar tekjur Kl. 10:00
Til fundar við nefndina komu Kristín Lind Árnadóttir og Kristín Kalmannsdóttir frá Umhverfisstofnun.
Kl. 10:32. Hannes G. Sigurðsson og Bergþóra Halldórsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins.
Kl. 11:14. Ásta Sigrún Helgadóttir og Eygló Kristjánsdóttir frá Umboðsmanni skuldara.
Gestirnir fóru yfir umsagnir sínar og svöruðu spurningum um efni þeirra.

4) Önnur mál Kl. 11:47
Rætt var um vinnuna sem framundan er. Fleira var ekki gert.

5) Fundargerð Kl. 11:55
Fundargerð 24. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:57