30. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 10. desember 2018 kl. 09:32


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:32
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 10:00
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:35
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:32
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:32
Inga Sæland (IngS), kl. 09:32
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:32
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:56
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 09:32

Ágúst Ólafur Ágústsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 437. mál - fjáraukalög 2018 Kl. 09:32
Til fundarins komu Björn Þór Hermannsson, Magnús Óskar Hafsteinsson og Viðar Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þeir lögðu fram kynningarefni um frumvarpið, fóru yfir það og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni frumvarpsins.

2) Önnur mál Kl. 10:50
Inga Sæland hefur tekið sæti í fjárlaganefnd í stað Ólafs Ísleifssonar. Þá hefur Ágúst Ólafur Ágústsson tekið 2. mánaða leyfi og mun varamaður hans Ellert B. Schram taka sæti hans. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:00
Fundargerð 29. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:01