41. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 20. febrúar 2019 kl. 09:00


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:00
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:00
Einar Kárason (EinK) fyrir Ágúst Ólaf Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:00
Inga Sæland (IngS), kl. 09:00
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:00
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 09:00

Njáll Trausti Friðbertsson var fjarverandi vegna starfa á vegum Alþingis erlendis.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Framkvæmd fjárlaga 2019 Kl. 09:00
Til fundarins komu Viðar Helgason og Kristinn Jónasson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Rætt var um áhættumat vegna framkvæmdar fjárlaga 2019 og eftirlit innan ársins. Þá svöruðu gestirnir spurningum nefndarmanna.

2) Önnur mál Kl. 10:08
Rætt var um efni minnisblaða sem ráðuneytin eru með í vinnslu fyrir nefndina. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:22
Fundargerð 40. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:24