45. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 11. mars 2019 kl. 09:34


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:34
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:34
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:39
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:34
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:34
Inga Sæland (IngS), kl. 09:34
Oddný G. Harðardóttir (OH) fyrir Ágúst Ólaf Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:41
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:44
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 09:34

Njáll Trausti Friðbertsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 442. mál - opinber innkaup Kl. 09:34
Til fundarins kom Sigurður Snædal Júlíusson lögmaður hjá Íslögum. Hann fór yfir umsögn sína og svaraði spurningum nefndarmanna um efni hennar.

2) Framkvæmd fjárlaga 2019 Kl. 10:04
Kl. 10:04. Dagný Brynjólfsdóttir og Guðmann Ólafsson frá heilbrigðisráðuneytinu.
Kl. 11:29. Svanhvít Jakobsdóttir og Inga Birna Einarsdóttir frá félagsmálaráðuneytinu. Gestirnir fóru yfir framkvæmd fjárlaga það sem af er árinu og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 11:50
Fleira var ekki gert.

4) Fundargerð Kl. 11:58
Fundargerð 44. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 12:04