50. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 25. mars 2019 kl. 09:30


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:30
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:30
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:30
Inga Sæland (IngS), kl. 09:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:30
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:30
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:45
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 09:30

Nefndarritari: Jón Magnússon

Bókað:

1) 414. mál - staðfesting ríkisreiknings 2017 Kl. 09:30
Haraldur Benediktsson framsögumaður málsins gerði grein fyrir fyrirliggjandi nefndaráliti. Samþykkt var að afgreiða málið til annarrar umræðu með atkvæðum allra nefndarmanna. Inga Sæland skrifar undir álitið með fyrirvara. Þorsteinn Víglundsson áheyrnarfulltrúi er samþykktur afgreiðslu málsins.

2) 442. mál - opinber innkaup Kl. 10:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir framsögumaður málsins kynnti stöðuna við vinnslu nefndarálits og ákveðið var að senda nefndarmönnum drög að áliti fyrir næsta fund.

3) 750. mál - fjármálaáætlun 2020--2024 Kl. 10:20
Formaður kynnti áætlun um fundi nefndarinnar á næstunni vegna málsins. Kynnt voru drög að bréfi til annarra fastanefnda.

4) Fundir OECD Kl. 10:30
Jón Magnússon, ritari nefndarinnar kynnti dagskrá og helstu umfjöllunarefni árlegs fundar OECD fyrir starfsfólk fjárlaganefnda og fjármálaráða.

5) Önnur mál Kl. 10:34
Fleira var ekki gert.

6) Fundargerð Kl. 10:35
Fundargerð 49. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:35