60. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 8. maí 2019 kl. 09:05


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:05
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:05
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:05
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:05
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:05
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:05
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 09:05

Njáll Trausti Friðbertsson var fjarverandi vegna veikinda. Birgir Þórarinsson og Inga Sæland voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 750. mál - fjármálaáætlun 2020--2024 Kl. 09:05
Til fundarins komu Joanna Marcinkowska og Steinunn Rögnvaldsdóttir frá Femínískum fjármálum. Þær kynntu umsögn samtakanna og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.

2) Önnur mál Kl. 10:08
Rætt var um stöðu mála í nefndinni. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:09
Fundargerð 59. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:10