68. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 22. maí 2019 kl. 09:02


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:02
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:02
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:02
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:02
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:02
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:14
Páll Magnússon (PállM), kl. 10:07
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 09:02

Birgir Þórarinsson var fjarverandi og Inga Sæland var fjarverandi vegna veikinda.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 750. mál - fjármálaáætlun 2020--2024 Kl. 09:02
Til fundarins komu Hrannar Már Gunnarsson og Ágúst Arnórsson frá BSRB.
Kl. 9:42. Þórunn Sveinbjarnardóttir og Georg Brynjarsson frá BHM.
Kl. 10:31. Ragnhildur Haraldsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, Þorleifur Karl Eggertsson og Valdimar O. Hermannsson frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandri vestra. Gestirnir kynntu umsagnir sínar og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra.

2) Önnur mál Kl. 11:17
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:19
Fundargerð 67. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:20