72. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 7. júní 2019 kl. 08:42


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 08:42
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 08:42
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 08:42
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) fyrir Ágúst Ólaf Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 08:43
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 08:42
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 08:42
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 08:42
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 08:42
Páll Magnússon (PállM), kl. 08:42
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 08:42

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 750. mál - fjármálaáætlun 2020--2024 Kl. 08:40
Til fundarins komu Jón Viðar Pálmason, Elín Guðjónsdóttir, Helga Jónsdóttir og Dóróthea Jóhannsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þau lögðu fram minnisblað dagsett 5. júní 2019, ásamt fylgiskjölum, um breyttar afkomuhorfur og tillögur að breytingum á fjármálaáætlun fyrir árin 2020-2024. Þá var lagt fram minnisblað dagsett 5. júní 2019 um þjóðhagspá Hagstofu Íslands í maí 2019. Gestirnir kynntu efni minnisblaðanna og fylgiskjalanna og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra.

2) Önnur mál Kl. 09:30
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 09:32
Fundargerð 71. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 09:33