20. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 11. nóvember 2019 kl. 11:03


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 11:03
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 11:03
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 11:03
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 11:03
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 11:03
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 11:03
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 11:03
Páll Magnússon (PállM), kl. 11:03
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 11:03
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 11:12

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2020 Kl. 11:03
Frumvarp til fjárlaga 2020 og nefndarálit voru afgreidd til 2. umræðu með atkvæðum meiri hluta nefndarinnar. Hann skipa Willum Þór Þórsson, Haraldur Benediktsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Páll Magnússon og Njáll Trausti Friðbertsson. Björn Leví Gunnarsson greiddi atkvæði gegn afgreiðslunni. Aðrir í minni hlutanum sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Minni hlutarnir munu leggja fram hver sitt nefndarálit en þá skipa: Birgir Þórarinsson, Björn Leví Gunnarsson, Inga Sæland og Ágúst Ólafur Ágústsson.

2) Önnur mál Kl. 11:41
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:42
Fundargerð 19. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:43