46. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 4. mars 2020 kl. 09:11


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:11
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:11
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:11
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:11
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:11
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:11

Njáll Trausti Friðbertsson og Inga Sæland voru fjarverandi vegna veikinda. Ágúst Ólafur Ágústsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Undirbúningur fyrir fjármálaáætlun 2021-2025 Kl. 09:11
Til fundarins komu Björn Þór Hermannsson, Marta Birna Baldursdóttir, Katrín Anna Guðmundsdóttir og Jón Viðar Pálmason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þau fóru yfir stöðu á vinnslu fjármálaáætlunar 2021-2025 og stefnumótunar málefnasviða ráðuneyta. Síðan svöruðu þau spurningum nefndarmanna.

2) Önnur mál Kl. 10:29
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:32
Fundargerð 45. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:33