48. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 10. mars 2020
kl. 13:12
Mætt:
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 13:12Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 13:31
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 13:12
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 13:12
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 14:11
Páll Magnússon (PállM), kl. 13:12
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 13:12
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 13:12
Inga Sæland var fjarverandi vegna veikinda. Ágúst Ólafur Ágústsson var fjarverandi vegna veikinda barns. Páll Magnússon vék af fundi kl. 14:07.
Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) Undirbúningur fyrir fjármálaáætlun 2021-2025 Kl. 13:12
Til fundarins komu Gissur Pétursson, Svanhvít Jakobsdóttir, Jóhanna Lind Elíasdóttir og Inga Birna Einarsdóttir frá félagsmálaráðuneytinu.
Kl. 14:32. Pétur Fenger og Marsilía Dröfn Sigurðardóttir frá dómsmálaráðuneytinu. Gestirnir fóru yfir áform ráðuneyta sinna í gildandi fjármálaáætlun og svöruðu spurningum nefndarmanna.
2) Önnur mál Kl. 15:36
Fleira var ekki gert.
3) Fundargerð Kl. 15:37
Fundargerð 47. fundar var samþykkt.
Fundi slitið kl. 15:38