49. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, laugardaginn 21. mars 2020 kl. 15:14


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 15:14
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 15:14
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 15:14
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 15:14
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 15:14
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 15:14
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 15:14
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 15:14
Páll Magnússon (PállM), kl. 15:14
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 15:14

Nefndarritari: Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 695. mál - fjáraukalög 2020 Kl. 15:14
Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.
Til fundarins komu Björn Þór Hermannsson, Sigurður Helgason og Kristinn Bjarnason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þeir fóru yfir frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2020 og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þess.

2) Önnur mál Kl. 16:21
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 16:22
Fundargerð 48. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 16:25