62. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, föstudaginn 24. apríl 2020 kl. 08:30


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 08:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 08:30
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 08:30
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 08:30
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 08:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 08:30
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 08:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 08:30
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 08:30

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl. Páll Magnússon var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 724. mál - fjáraukalög 2020 Kl. 08:30
Til fundarins komu Björn Þór Hermannsson, Jón Viðar Pálmason, Katrín Anna Guðmundsdóttir, Hlynur Hreinsson, Dóróthea Jóhannsdóttir, Kristinn Bjarnason, Sólrún Halldóra Þrastardóttir og Hilda Hrund Cortez frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þau kynntu frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þess.
Kl. 10:00. Guðrún Gísladóttir, Ingvi Már Pálsson, Magnús Óskar Hafsteinsson og Arnór Snæbjörnsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Kl. 10:37. Páll Magnússon, Auður B. Árnadóttir, Jón Vilberg Guðjónsson, Björg Pétursdóttir og Helgi Freyr Kristinsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Kl. 11:16. Ingilín Kristmannsdóttir og Hermann Sæmundsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
Kl. 11:52. Gissur Pétursson, Svanhvít Jakobsdóttir, Erna Kristín Blöndal og Gunnhildur Gunnarsdóttir frá félagsmálaráðuneytinu.
Kl. 12:37. Ásta Valdimarsdóttir, Runólfur Birgir Leifsson og Dagný Brynjólfsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu.
Gestirnir fóru yfir þann hluta frumvarpsins sem er á ábyrgðarsviði ráðuneytis þeirra og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þess.

2) Önnur mál Kl. 13:01
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 13:02
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 13:04