52. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 25. mars 2020 kl. 08:30


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 08:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 08:30
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 08:30
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 08:30
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 08:30
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 08:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 08:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 08:30
Páll Magnússon (PállM), kl. 08:30
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 08:30

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 695. mál - fjáraukalög 2020 Kl. 08:30
Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.
Til fundarins komu Karl Björnsson, Guðjón Bragason og Sigurður Ármann Snævarr frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Kl. 9:00. Grímur Atlason frá Geðhjálp.
Kl. 9:35. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, Sigurjón Unnar Sveinsson og Sigríður Hanna Ingólfsdóttir frá Öryrkjabandalagi Íslands.
Kl. 9:55. Sigurður Hannesson, Sigríður Mogensen og Ingólfur Bender frá Samtökum iðnaðarins.
Kl. 10:20. Heiðrún Lind Marteinsdóttir frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Kl. 10:40. Vilhjálmur Bjarnason og Guðmundur Ásgeirsson frá Hagsmunasamtökum heimilanna.
Gestirnir kynntu umsagnir sínar og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra.

2) Önnur mál Kl. 11:38
Rætt var um þá vinnu sem framundan er við afgreiðslu frumvarpsins. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:41
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 11:42