77. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Fjarfundur, miðvikudaginn 20. maí 2020 kl. 09:02


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:02
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:02
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:02
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:02
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:02
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:02
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:02
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:02
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:02
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:02

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Samningur við Seðlabanka Íslands um stuðningslán Kl. 09:02
Til fundarins komu Haraldur Steinþórsson og Jón Gunnar Vilhelmsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þeir kynntu samning ráðuneytisins við Seðlabanka Íslands um stuðningslán og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hans.

2) Önnur mál Kl. 10:28
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:29
Fundargerð 76. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:30