87. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 15. júní 2020 kl. 09:35


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:35
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:35
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:35
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:35
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:35
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:35
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:46
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:35

Inga Sæland tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl., framlengd á þingfundum 14. apríl og 30. apríl sl. og endurnýjuð á þingfundi 8. júní sl. Páll Magnússon og Ágúst Ólafur Ágústsson voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Íslandspóst ohf. Kl. 09:35
Til fundarins komu Bjarni Jónsson og Birgir Jónsson frá Íslandspósti ohf. Þeir kynntu rekstur fyrirtækisins og framtíðarhorfur og þann viðsnúning sem orðið hefur á rekstrinum til betri vegar.

2) Önnur mál Kl. 10:33
Rætt var um vinnuna sem framundan er. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:55
Fundargerð 86. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:56