7. fundur
fjárlaganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 19. október 2020 kl. 09:00


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:00
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:49
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:00
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) 2. mál - fjármálaáætlun 2021--2025 Kl. 09:00
Til fundarins komu Gunnar Haraldsson, Axel Hall, Ásgeir Brynjar Torfason og Þórhildur Hansdóttir Jetzek frá fjármálaráði. Þau kynntu 8. álitsgerð ráðsins og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.

2) Önnur mál Kl. 11:14
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:15
Fundargerð 5. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:16