8. fundur
fjárlaganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 21. október 2020 kl. 09:00


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:00
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:00
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:00
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2021 Kl. 09:00
Til fundarins komu Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Páll Magnússon, Auður B. Árnadóttir, Marta Guðrún Skúladóttir, Helgi Freyr Kristinsson, Jón Vilberg Guðjónsson, Karitas H. Gunnarsdóttir, Björg Pétursdóttir og Óskar Þór Ármannsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Kl. 10:40. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, Martin Eyjólfsson, Gísli Magnússon, Bryndís Kjartansdóttir, Nikulás Hannigan, María Mjöll Jónsdóttir, Jón Sverrisson, Ingunn Þorsteinsdóttir og Sara Ögmundsdóttir frá utanríkisráðuneytinu. Gestirnir fjölluðu um þann hluta frumvarpsins sem er á ábyrgðarsviði ráðuneytis þeirra og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þess.

2) 2. mál - fjármálaáætlun 2021--2025 Kl. 09:00
Til fundarins komu Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Páll Magnússon, Auður B. Árnadóttir, Marta Guðrún Skúladóttir, Helgi Freyr Kristinsson, Jón Vilberg Guðjónsson, Karitas H. Gunnarsdóttir, Björg Pétursdóttir og Óskar Þór Ármannsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Kl. 10:40. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, Martin Eyjólfsson, Gísli Magnússon, Bryndís Kjartansdóttir, Nikulás Hannigan, María Mjöll Jónsdóttir, Jón Sverrisson, Ingunn Þorsteinsdóttir og Sara Ögmundsdóttir frá utanríkisráðuneytinu. Gestirnir fjölluðu um þann hluta þingsályktunarinnar sem er á ábyrgðarsviði ráðuneytis þeirra og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.

3) Önnur mál Kl. 12:10
Fleira var ekki gert.

4) Fundargerð Kl. 12:11
Fundargerð 6. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 12:12