26. fundur
fjárlaganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 7. desember 2020 kl. 20:30


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 20:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 20:30
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 20:30
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 20:30
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 20:30
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 20:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 20:30
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 20:30
Páll Magnússon (PállM), kl. 20:30
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 20:30

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2021 Kl. 20:30
Frumvarpið var afgreitt til annarrar umræðu af meiri hluta nefndarinnar. Hann skipa Willum Þór Þórsson, Haraldur Benediktsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Páll Magnússon. Meiri hlutinn stendur jafnframt að nefndaráliti meiri hluta og breytingatillögum. Minni hlutinn sat hjá við afgreiðsluna. Fjórir minni hlutar leggja fram sitt hvert minni hluta nefndarálitið og breytingatillögur, þ.e. Ágúst Ólafur Ágústsson, Birgir Þórarinsson, Björn Leví Gunnarsson og Inga Sæland.

2) 2. mál - fjármálaáætlun 2021--2025 Kl. 21:01
Ákveðið var að Haraldur Benediktsson yrði framsögumaður málsins.

3) Fundargerð Kl. 21:02
Fundargerð 24. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 21:03