56. fundur
fjárlaganefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 9. júní 2022
kl. 15:02
Mætt:
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) formaður, kl. 15:02Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 2. varaformaður, kl. 15:02
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 15:02
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 15:02
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 15:02
Kristrún Frostadóttir (KFrost), kl. 15:02
Stefán Vagn Stefánsson (SVS), kl. 15:02
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 15:02
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 15:02
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 15:02
Gestir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.
Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) 513. mál - fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027 Kl. 15:14
Til fundarins kom Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra. Auk hans komu Tómas Brynjólfsson, Nökkvi Bragason, Katrín Anna Guðmundsdóttir og Hersir Aron Ólafsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Lagt var fram bréf fjármála- og efnahagsráðherra dagsett 9. júní 2022 en í því fer hann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar þess á leit við fjárlaganefnd Alþingis að við síðari umræðu um þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun fyrir árin 2023-2027 verði gerðar þær breytingar á markmiðum um afkomu og efnahags hins opinbera í heild sem fram koma í yfirlitum sem fylgja bréfinu. Farið var yfir minnisblað ráðuneytisins dags. 9. júní 2022 um aðgerðir til þess að sporna við þenslu í hagkerfinu. Jafnframt var farið yfir efni minnisblaðs ráðuneytisins dagsett 3. júní 2022 þar sem farið er yfir undirbúning fyrir síðari umræðu fjármálaáætlunar fyrir árin 2023-2027.
Kl. 16:49. Til fundarins kom Gunnar Haraldsson formaður fjármálaráðs. Hann fór yfir efni fyrrgreinds bréfs og minnisblaða og svaraði síðan spurningum nefndarmanna úr efni þeirra.
2) Önnur mál Kl. 17:24
Samþykkt var skv. 1. mgr. 24. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr.
51. gr. þingskapa að óska eftir stuttu minnisblaði frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Fleira var ekki gert.
3) Fundargerð Kl. 17:26
Fundargerð 55. fundar var samþykkt.
Fundi slitið kl. 17:27