20. fundur
fjárlaganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 23. nóvember 2011
kl. 09:02
Mættir:
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 09:15Árni Þór Sigurðsson (ÁÞS), kl. 09:02
Ásbjörn Óttarsson (ÁsbÓ), kl. 09:02
Björgvin G. Sigurðsson (BjörgvS), kl. 10:10
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 09:02
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ), kl. 09:02
Illugi Gunnarsson (IllG), kl. 10:05
Kristján Þór Júlíusson (KÞJ), kl. 09:02
Sigmundur Ernir Rúnarsson (SER), kl. 09:02
Nefndarritari: Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) 1. mál - fjárlög 2012 Kl. 09:03
Atvinnumálanefnd Alþingis: Kristján Möller. Farið yfir álit meiri hluta nefndarinnar um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2012. Einar K. Guðfinnsson. Farið yfir álit minni hluta nefndarinnar um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2012.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis: Farið yfir álit nefndarinnar um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2012.
Allsherjar- og menntamálanefnd: Björgvin G. Sigurðsson. Farið yfir álit meiri hluta nefndarinnar um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2012.
Formaður tilkynnti að stefnt væri að því að taka fjárlagafrumvarpið út úr fjárlaganefnd á nk. föstudaginn til 2. umræðu. Óskað hún eftir tillögum að gestalista.
Kristján Þór gerði athugasemd við að 2. umræðu um fjárlög væri ekki frestað þar sem ríkisstjórnin hefði afhent sínar tillögur fyrst daginn áður sem væri 3 virkum dögum síðar en áætlað var.
2) Önnur mál. Kl. 10:35
Rætt var um störf nefndarinnar á næstu dögum.
Björgvin G. Sigurðsson var veðurtepptur og komst því ekki á réttum tíma á fundinn.
Þór Saari var fjarverandi.
3) Samþykkt fundargerðar. Kl. 10:40
Fundargerð samþykkt af öllum viðstöddum sem voru: ÁÞS, ÁsbÓ, IllG, HöskÞ, SER, SII, BVG og BjörgvS.